Ársreikningur

Rekstur Golfklúbbsins Keilis gekk vel á árinu 2021. Golfiðkun félagsmanna virtist hafa jafnað sig aðeins samanborið við síðasta ár en sumarið 2020 var stærsta íslenska golfsumar frá upphafi. Fólk ferðaðist í meiri mæli á árinu og sést það í fækkun spilaðra hringja.

Tekjur á árinu 2021 voru 293,2 mkr. samanborið við 264,7 mkr. árinu áður. Gjöld voru 268,7 mkr. samanborið við 235,9 mkr. á árinu 2020. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) var 24,5 mkr. á árinu 2021 samanborið við 28,8 mkr. árinu áður.

Niðurstaða ársins er hagnaður upp á 8,1 mkr. Afskriftir um 13,0 mkr sem er sambærilegt og árið 2020 og skýrist það að mestu leiti á hröðum afskriftartíma golfhermanna okkar.

Hér fyrir neðan má svo nálgast ársreikning Golfklúbssins Keilis 2021.

Rekstrarreikningur
Efnahagsreikningur
Sjóðstreymi
Rekstraráætlun
Sækja ársreikning á PDF

Tekjur

Gjöld