Ólafur Þór Ágústsson, framkvæmdastjóri Keilis, tók við formennsku í FEGGA um nýliðna helgi.
FEGGA (Federation of European Golf Greenkeepers Associations) eru regnhlífarsamtök fyrir samtök golfvallastarfsmanna í Evrópu og hefur Ólafur gegnt hlutverki varaformanns síðustu tvö ár. Ólafur tekur við formennsku af svíanum Stig Person.
Kjör Ólafs til formanns FEGGA er vottur um metnað og fagmennsku hans í starfi og er honum og Golfklúbbnum Keili til mikils sóma. Starfsfólk Keilis óskar framkvæmdastjóranum sínum innilega til hamingju með þennan áfanga.