60 félagar mættu á aðalfund Keilis sem haldin var í gærkvöldi í golfskálanum. Már Sveinbjörnsson stýrði fundinum af röggsemi, helstu rekstrarniðurstöður voru:
Félögum fækkaði á milli ára um 40. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði var 22.4 m.kr og hagnaður ársins nam 17.8 m.kr. Mikill árangur hefur náðst í lækkun langtímaskulda klúbbsins enn þegar þær stóðu hæðst voru langtímaskuldir 165 milljónir árið 2009, en eftir rekstrarárið 2014 standa þær í 43 milljónum. Hér má sjá skýrslu stjórnar og ársreikninga fyrir árið 2014.
Stjórn Keilis var eftirfarandi kjörin fyrir árið 2015:
Formaður: Arnar Atlason
Aðalstjórn, til tveggja ára: Guðmundur Óskarsson og Ellý Erlingsdóttir
Aðalstjórn til eins árs: Davíð Arnar Þórsson og Sveinn Sigurbergsson Varastjórn: Guðbjörg Erna Guðmundsdóttir og Daði Janusson
Aðalfundurinn samþykkti gjaldskrá félaga fyrir næsta ár, að tillögu stjórnar
Félagsmenn 21 – 66 ára verður 88.500 kr.
Félagsmenn 67 ára og eldri verður 65.500 kr.
Félagsmenn 13 – 20 ára verður 40.000 kr.
Félagsmenn 12 ára og yngri verður 33.500 kr
Sveinskotsvöllur ( 9 holu völlurinn )
Félagsmenn 21 – 66 ára verður 50.000 kr.
Félagsmenn 17-20 ára 40.000 kr.
Félagsmenn 16 ára og yngri 0 kr.
Félagsmenn 67+ 35.000 kr.