Axel Bóasson hóf leik í morgun á The Amateur Championship á Norður Írlandi ásamt Guðmundi Ágúst, Haraldi Franklín og Andra Björnssyni úr GR. Hann er núna +4 eftir 12 holur.
Mótið er spilað á tveimur völlum, Royal Portrush og Portstewart, en Axel er að leika Portstewart í dag. 288 leikmenn hófu leik og spila 18 holu höggleik á hvorum velli. Þá er niðurskurður, en 64 bestu spilararnir komast áfram í holukeppnina. Hver leikur í holukeppninni er 18 holur nema úrslitaleikurinn sem er 36 holur.
Sigurvegarinn fær þátttökurétt á Opna Breska sem er haldið á Royal Liverpool og Opna Bandaríska 2015. Venjan er einnig sú að sigurvegarinn fær boð á Masterinn árinu seinna og því skal engann undra að allir bestu áhugamenn heimsins eru skráðir til leiks.
Hægt er að fylgjast með kappanum hér.