Golfklúbburinn Keilir í Hafnarfirði óskar eftir að ráða öflugan aðila í starf vélvirkja. Vélvirki ber ábyrgð á fyrirbyggjandi viðhaldi og viðgerðum á vélaflota klúbbsins. Um framtíðarstarf er að ræða fyrir réttan aðila.
Golfklúbburinn Keilir er einn stærsti golfklúbbur landsins. 4 heilsársstarfsmenn vinna við viðhald vallarins í viðbót við 13 sumarstarfsmenn. Golfvöllurinn er þekktur fyrir góða umhirðu á meðal kylfinga og því mikilvægt að vélar klúbbsins séu ávalt í góðu ásigkomulagi svo hægt sé að viðhalda þeim gæðum sem meðlimir og aðrir kylfingar búast við.
Starfssvið:
- Umsjón á viðhaldi alls vélaflota golfklúbbsins, frá smátækjum til bifreiða.
- Sér til þess að vélafloti klúbbsins sé starfshæfur og fullgildi allar öryggiskröfur.
- Innkaup á varahlutum og umsjón með varahlutalager
- Skipulag á útseldri brýningarþjónustu klúbbsins
- Umsjón með umhirðu á verkstæði og vélahúsi
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Menntun á sviði bifvéla- eða vélvirkjunar, eða sambærilegt
- Góð reynsla og hæfni í málmsuðu
- Reynsla af viðhaldi glussadrifinna tækja, smávéla (tvígengismótorar), raftækja sem og venjulegra bifreiða
- Geta haldið bókhald um viðhald tækja og séð um pantanir á varahlutum
- Góð tölvukunnátta skilyrði sem og góð enskukunnátta
- Reynsla af brýningum á sláttukeflum er kostur en þó ekki nauðsynleg
- Getur mögulega sinnt nýsmíði á t.d. einföldum kerrum o.þ.h.
Viðkomandi þarf að búa yfir mikilli hæfni í mannlegum samskiptum. Hafa hæfni til þess að vinna sjálfstætt og undir álagi. Mjög mikilvægt er að viðkomandi sé snyrtilegur í umgengni og skipulagður í sinni vinnu.
Umsóknarfrestur er til og með 1. desember nk. Umsækjendur eru vinsamlegast beðnir að senda umsókn á bjarni@keilir.is
Umsókn um starfið þarf að fylgja starfsferilsskrá.